musicas.mus.br
Letras de músicas - letra de música - letra da música - letras e cifras - letras traduzidas - letra traduzida - lyrics - paroles - lyric - canciones - MAMMA þARF Að DJAMMA - YOHANNA - música e letra
Utilize o abecedário abaixo para abrir as páginas de letras dos artistas
Mamma þarf að djamma letra
Mamma er enn í eldhúsinu, úh, úh, úh
Uppgefin á þessu og hinu, úh, úh, úh
Teygir sig í kampavínið, kælir það í drasl
Á klaka setur vandamálin, áhyggjur og basl
Spyrðir sig í sparigallann, úh, úh, úh
Sparslar fésið, reyrir mallann, úh, úh, úh
Mamma þyrfti að sofna því mamma er svo þreytt
En mamma landar engum þorskum sofi hún út í eitt
Mamma, mamma ætlar að djamma
Fá sér nýjan vin
Mamma, mamma ætlar að djamma
Elsku kerlingin
Svo ljúfsárt getur lífið verið, úh, úh, úh
Hún losar sig við krakkagerið, úh, úh, úh
Rauðum vörum litar glasið, lakkar tásurnar
Lyftir barmi, þarf að toppa hinar pjásurnar
Af lymsku skal nú lagt á ráðin, úh, úh, úh
Hvar leynist skársta næturbráðin? Úh, úh, úh
Stundum er hún heppin en oftast fer allt í fokk
Þá fer hún heim með öskupöddufullann drullusokk
Mamma, mamma ætlar að djamma
Til í tuskið er
Mamma, mamma ætlar að djamma
Ein með sjálfri sér
Fengitíminn löngu liðinn, úh, úh, úh
Lokametrinn skal þó skriðinn, úh, úh, úh
Þó óbeislaðar gamlar merar ættu að brokka heim
Það eru engir prinsar eftir til að brynna þeim
Mamma, mamma ætlar að djamma
Hún á engan mann
Mamma, mamma ætlar að djamma
Það eina sem hún kann
Mútta, mútta ætlar að tjútta
Elsku kerlingin
Mútta, mútta ætlar að tjútta
Og finna í þetta sinn
Nýja pabbann þinn
Yohanna - Letras
- Beautiful Silence
- Butterflies And Elvis
- Ég hlakka svo til
- Funny Thing Is
- I Miss You
- Indian Ropetrick
- Is It True?
- Lose Myself
- Mamma þarf að djamma
- Nótt
- Rainbow Girl
- Say Goodbye
- Si Te Vas
- Si tu sais
- Slow Down
- Spaceman
- The River Is Dry
- The Winner Takes It All
- Tvær stjörnur
- Undir stjörnubjörtum himni
- Waiting For A Star To Fall
- Walking On Water
- War es nur
- White Bicycle
- Worryfish
- You Must Love Me
- Þessi jól
- Þú
top 30 músicas
©2003 - 2026 - musicas.mus.br